Einföld skýring á kerfinu sem heldur utan um vörumerkið þitt, vefinn, auglýsingarnar og skýrslurnar. Hönnunin er handverk. Kerfið sér um utanumhaldið, svo meiri tími fari í sköpunina.
Öll verkefni, hvort sem það er heil vefsíða eða ein auglýsing, fara í gegnum sama ferli. Þannig verður allt samræmt og ekkert týnist.
Verkaskiptingin er skýr: hugmyndirnar og hönnunin eru handverk og þar er fólk að verki. Snjöll tækni er svo notuð í það sem áður át tímann, samantektir á gögnum, utanumhald, stærðir og skýrslur. Þannig nýtist tíminn sem þú kaupir betur: stærri hluti hans fer í sköpunina. Uppsetning og umhirða kerfisins er svo hluti af þjónustunni, það heldur sér ekki sjálft.
Merki, litir, letur og raddblær eru skjalfest á einum stað. Þetta er heimildin sem allt annað byggir á.
Vefur, kynningar og auglýsingar eru hönnuð út frá vörumerkinu. Þú samþykkir aðalútgáfuna, og þá fyrst tekur kerfið við og klárar allar stærðir, útfærslur og frágang.
Vefurinn fer í loftið á þínu léni. Auglýsingar fara á Google, Meta og í íslenska miðla, allar merktar svo hægt sé að mæla þær.
Umferð og árangur er mældur frá fyrsta degi. Þú færð skýrslu á mannamáli, sömu skýrsluna í hverjum mánuði.
Hver kúnni fær sitt eigið sett af kerfum. Ekkert af þessu er falið, hér er hvað hvert þeirra gerir.
Vefurinn þinn er birtur á þínu eigin léni. Kóðinn er geymdur í öruggri útgáfustýringu (GitHub) þar sem hver einasta breyting er skráð og hægt er að fara til baka. Hýsingin er hraðvirk og örugg.
Google Analytics mælir umferð á vefinn. Search Console fylgist með því hvernig vefurinn birtist í leitarniðurstöðum. Ef keyptar eru Google auglýsingar tengjast þær beint við mælingarnar.
Auglýsingar og efni á Facebook og Instagram fara í gegnum Meta Business Manager. Fyrirtækið þitt á sinn eigin aðgang, Hvalreki fær vinnuaðgang í gegnum hann.
Vörumerkið þitt fær sína eigin vefsíðu með merkjum, litum, letri og reglum. Alltaf uppfærð, alltaf aðgengileg, fyrir þig og alla sem vinna með vörumerkið.
Flestir vefir eru byggðir á vefumsjónarkerfum eins og WordPress: gagnagrunnur, innskráningarsíða og tugir viðbóta frá óskyldum aðilum. Það hentar sumum verkefnum, en hver viðbót er hurð sem þarf að vakta og uppfæra, og langflest innbrot á minni vefi gerast einmitt í gegnum úreltar viðbætur.
Vefir Hvalreka eru byggðir öðruvísi. Síðan er fullbúin fyrirfram og afhent vafranum sem hreinar vefskrár. Á vefþjóninum er engin innskráningarsíða, enginn gagnagrunnur og engar viðbætur. Það sem er ekki til verður ekki hakkað.
| Þáttur | Dæmigerður WordPress vefur | Hvalreki vefur |
|---|---|---|
| Innskráning á vefþjóni | Já, aðgengileg öllum á netinu | Engin |
| Viðbætur frá þriðja aðila | Oft 20 til 40, hver með sína áhættu | Engar |
| Gagnagrunnur á bak við síðuna | Já, þarf að verja og afrita | Enginn |
| Öryggisuppfærslur | Vikulega, geta brotið vefinn | Engar nauðsynlegar |
| Hraði | Síðan reiknuð í hverri heimsókn | Tilbúin fyrirfram, birtist strax |
| Flutningur til annars aðila | Kerfi, leyfi og viðbætur fylgja með | Ein mappa af vefskrám |
Þurfi vefurinn breytanlegt efni, til dæmis fréttir, matseðil eða opnunartíma, er bætt við litlu læstu stjórnborði fyrir nákvæmlega það. Ein lítil hurð með lykli, í stað þess að allur vefurinn standi opinn í stjórnkerfi.
Ekkert á netinu er fullkomlega öruggt. En með þessari nálgun er árásarflöturinn eins lítill og hann getur orðið, og hver einasta breyting á vefnum er skráð og afturkræf.
Grunnreglan er einföld: þú átt aðgangana, Hvalreki vinnur í gegnum þá. Aðgangar eru stofnaðir í nafni fyrirtækisins þíns þar sem því verður við komið, ekki í nafni Hvalreka.
| Þáttur | Eigandi | Daglegur rekstur |
|---|---|---|
| Lén | Þú | Hvalreki sér um tæknistillingar |
| Vefur og kóði | Þú | Hvalreki uppfærir og viðheldur |
| Google Analytics | Þú | Hvalreki les og vinnur skýrslur |
| Meta Business | Þú | Hvalreki birtir og stýrir herferðum |
| Vörumerki og efni | Þú | Hvalreki hannar og skjalfestir |
Í hverjum mánuði færðu skýrslu, alltaf eins upp byggða, á íslensku og á mannamáli. Engin tæknihugtök án skýringa og aldrei giskað í eyður.
Vonandi verður samstarfið langt og gott. En ef því lýkur, af hvaða ástæðu sem er, þá er ferlið skýrt og þú situr aldrei fastur.
Ef eitthvað hér er óskýrt, eða þú vilt fá admin aðgang að einhverju, sendu línu.
hvalreki@hvalreki.is